Sara lagði upp mark í stórsigri

Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Al Qadsiah.
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Al Qadsiah. Ljósmynd/Al-Qadsiah

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrverandi fyrirliði kvennalandsliðsins í knattspyrnu, lagði upp mark í dag þegar lið hennar, Al Qadsiah, vann stórsigur gegn Al Amal á útivelli í sádiarabísku úrvalsdeildinni, 6:1.

Sara lék allan leikinn á miðjunni og lagði upp annað mark liðsins fyrir Ajara Nchout frá Kamerún sem skoraði síðan fjögur mörk til viðbótar í leiknum.

Þetta var fyrsti sigur Al Qadsiah á tímabilinu en liðið hafði fengið eitt stig í fyrstu þremur leikjunum í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert