Düsseldorf gerði 1:1 jafntefli við Paderborn í toppslagnum í þýsku B-deildinni í kvöld. Valgeir Lunddal Friðriksson og Ísak Bergmann Jóhannesson voru báðir í byrjunarliði Düsseldorf.
Liðin eru bæði með 21 stig í öðru og þriðja sæti, með sömu markatölu og aðeins einu stigi á eftir Hannover 96 sem er í toppsætinu.
Staðan var markalaus í hálfleik en Valgeir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 61. mínútu sem kom Paderborn yfir.
Calvin Brackelmann skoraði svo einnig sjálfsmark á fimmtu mínútu uppbótartímans sem jafnaði leikinn fyrir Düsseldorf.