Rekinn eftir aðeins 12 leiki

Ivan Juric fékk ekki langan tíma með Roma.
Ivan Juric fékk ekki langan tíma með Roma. AFP/Andrea Solaro

Ítalska félagið Roma hefur rekið Króatann Ivan Juric eftir aðeins 12 leiki í starfi með félaginu. Roma mátti þola 3:2-tap gegn Bologna í gær.

Juric tók við liðinu í september eftir að Daniele de Rossi var látinn fara. Í 12 leikjum tókst Juric að sigra fjóra leiki, gera jafntefli í þremur og tapa fimm.

Roma situr í 12. sæti ítölsku A-deildarinnar með 13 stig eftir 12 leiki. Í deildarkeppni Evrópudeildarinnar er liðið í 20. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert