Sverrir stóð vaktina vel í Grikklandi

Sverrir Ingi Ingason leikur með Panathinaikos í Grikklandi.
Sverrir Ingi Ingason leikur með Panathinaikos í Grikklandi. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörn Panathinaikos þegar liðið hafði betur gegn Lamia, 1:0, í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Varamaðurinn Anastasios Bakasetas skoraði eina mark leiksins á 73. mínútu.

Sverrir Ingi spilaði allan leikinn fyrir Panathinaikos en samherji hans, Hörður Björgvin Magnússon, er frá vegna meiðsla.

Panathinaikos situr í fimmta sæti deildarinnar með 19 stig eftir 11 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert