Austurríki á toppinn

Michael Gregoritsch skýtur og skorar úr aukaspyrnu.
Michael Gregoritsch skýtur og skorar úr aukaspyrnu. AFP/Ruslan Pryanikov

Austurríki er komið á toppinn í 3. riðli B-deildar Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu karla eftir sigur á Kasakstan, 2:0, í Kasakstan í dag. 

Austurríki er nú með tíu stig á toppnum, þremur stigum meira en Noregur og Slóvenía sem mætast í Slóveníu í kvöld. 

Mörk Austurríkis skoruðu Christoph Baumgartner og Michael Gregoritsch. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert