Fyrsti keppnissigur Færeyinga í yfir tvö ár

Gunnar Vatnhamar lék allan leikinn fyrir Færeyjar.
Gunnar Vatnhamar lék allan leikinn fyrir Færeyjar. mbl.is/Óttar

Færeyjar unnu sinn fyrsta keppnisleik í yfir tvö ár með sigri á Armeníu ytra, 1:0, í 4. riðli í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu karla. 

Færeyjar höfðu ekki unnið keppnisleik síðan í september árið 2022, en þá vann liðið heimasigur á Tyrkjum, 2:1.

Víkingurinn Gunnar Vatnhamar lék allan leikinn fyrir færeyska liðsins sem er komið með sex stig og er í öðru sæti í riðlinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert