Vonarstjarna írska karlalandsliðsins Evan Ferguson skoraði sigurmarkið í sigri lærisveina Heimis Hallgrímssonar á Finnlandi, 1:0, í Dublin í kvöld.
Leikurinn var liður í 2. riðli B-deildar Þjóðdeildar Evrópu í knattspyrnu en Írland er nú með sex stig í þriðja sæti riðilsins. Finnar eru á botninum án stiga, Grikkland í öðru með 12 stig líkt og England á toppnum.
Mark Fergusons kom á 45. mínútu en þetta er annar sigur Heimis með írska landsliðið, báðir komið gegn Finnlandi.