Hollenska stórveldið Ajax mun breyta merki sínu eftir tímabilið. Félagið tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum sínum.
Ajax mun aftur taka upp eldra merki félagsins í tilefni 125 ára afmælis þess í mars næstkomandi. Merkið sem verður tekið í notkun er það sama og var notað frá 1928 til 1991.
Íslendingurinn Kristian Hlynsson leikur með Ajax í hollensku úrvalsdeildinni.
From 1900.
— AFC Ajax (@AFCAjax) November 17, 2024