Chelsea tók toppsætið af City

Mayra Ramirez með boltann í leiknum í gær.
Mayra Ramirez með boltann í leiknum í gær. Ljósmynd/Chelsea

Chelsea er á toppi ensku úrvalsdeild kvenna eftir 2:0-sigur gegn Manchester City í toppslag deildarinnar í London í gær.

 Chelsea er í fyrsta sæti með 21 stig og leik til góða á Manchester City sem er í öðru með 19 stig.

Markalaust var í hálfleik en á 75. mínútu kom Mayra Ramirez Chelsea yfir eftir stoðsendingu frá Maika Hamano.

Lucy Bronze, fyrrum leikmaður City, lagði upp seinna mark liðsins sem Guro Reitem skoraði á 79. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert