Viktor Gyökeres, framherji Sporting og sænska landsliðsins, segist ekki vera á leiðinni frá portúgalska félaginu í janúar.
„Það er ekki eitthvað sem ég hugsa um eða eitthvað sem skiptir máli. Þetta eru bara getgátur. Að sjálfsögðu langar mig að klára tímabilið með Sporting. Ég nýt þess að vera þar,“ sagði Gyökeres í viðtali eftir 2:1-sigur Svía gegn Slóvakíu í gær þar sem hann skoraði og lagði upp mark.
Gyökeres hefur verið orðaður mikið við Manchester United en nýi stjóri liðsins, Rúben Amorim, stýrði Sporting.
„Hann er líklegast með framherja, svo við sjáum til. Nei, hann hefur ekki gert það,“ sagði Gyökeres aðspurður hvort Amorim hafi spurt hann um að ganga til liðs við United.