Glódís skoraði í stórsigri

Glódís Perla Viggósdóttir í leik með Bayern München á þessari …
Glódís Perla Viggósdóttir í leik með Bayern München á þessari leiktíð. AFP/Christof Stache

Íslenska landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir skoraði í 5:0-sigri Bayern München gegn Jena í efstu deild þýska fótboltans í Bæjaralandi í dag.  

Glódís, sem bar fyrirliðabandið í leiknum, kom Bayern yfir á 19. mínútu. Aðeins tíu mínútum síðar tvöfaldaði Klara Bühl forystu Bæjara.  

Lea Schüller skoraði þriðja mark Bayern á 80. mínútu. Tveimur mínútum síðar skoraði Jovana Damnjanovic fjórða mark Bayern. Schüller innsiglaði síðan sigur Bayern á fjórðu mínútu uppbótartímans með hennar öðru marki. 

Úrslitin þýða að Bayern situr í þriðja sæti deildarinnar með 23 stig eftir 10 leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert