Fótboltaparið á von á barni

Kristie Mewis í leik með Bandaríkjunum og Sam Kerr í …
Kristie Mewis í leik með Bandaríkjunum og Sam Kerr í leik með Ástralíu. Ljósmynd/Samsett/AFP

Knattspyrnukonurnar Sam Kerr, sóknarmaður Chelsea, og Kristie Mewis, miðjumaður West Ham United eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Bandaríkjakonan Mewis, sem er 33 ára gömul, gengur með barnið. Hin 31 árs gamla Kerr, sem er frá Ástralíu, tilkynnti um gleðitíðindin á Instagramaðgangi sínum.

Við óskum Kristie og kærustu hennar Sam innilega til hamingju, en þær hafa tilkynnt að þær eiga von á sínu fyrsta barni, sagði í færslu frá West Ham á Instagram.

Kerr er markahæsti leikmaður í sögu ástralska kvennalandsliðsins á meðan Mewis á að baki 53 A-landsleiki fyrir Bandaríkin.

View this post on Instagram

A post shared by Sam Kerr (@samanthakerr20)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert