Vonarstjarnan óvænt í ensku úrvalsdeildina?

Brasilíumaðurinn Endrick.
Brasilíumaðurinn Endrick. AFP/Javier Torres

Brasilíumaðurinn Endrick, framherji Real Madrid, er orðaður við Southampton, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 

Sport á Spáni greinir frá en Endrick, sem er 18 ára gamall, gæti farið á lán frá Real Madrid í janúar. 

Þá er hann einnig orðaður við Roma á Ítalíu og Real Valladolid á Spáni. 

Endrick kom til Real Madrid í sumar frá Palmeiras í heimlandinu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið þekkt nafn lengi og talinn vonarstjarna Brasilíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert