Steinlá gegn Víkingi en seldur fyrir metfé

Kevin Denkey fagnar einu af þremur mörkum sínum fyrir Cercle …
Kevin Denkey fagnar einu af þremur mörkum sínum fyrir Cercle Brugge gegn St. Gallen í Sambandsdeildinni í haust. AFP/Kurt Despenter

Bandaríska knattspyrnufélagið Cincinnati hefur keypt framherjann Kévin Denkey af Cercle Brugge í Belgíu fyrir 16,2 milljónir dollara.

Það samsvarar 2,2 milljörðum íslenskra króna og er Denkey, sem er landsliðsmaður Tógó, þar með orðinn dýrasti leikmaðurinn í sögu bandaríska félagsins.

Denkey lék á Kópavogsvelli í síðasta mánuði þegar hann var í fremstu víglínu hjá Cercle Brugge þegar liðið tapaði óvænt fyrir Víkingi, 3:1, í Sambandsdeildinni. Hann lagði þá upp mark belgíska liðsins á 16. mínútu leiksins og spilaði allan leikinn.

Áður hafði hann skorað þrennu fyrir Cercle í fyrsta leik liðsins í Sambandsdeildinni í byrjun október en Belgarnir unnu þá St. Gallen frá Sviss, 6:2.

Denkey, sem er 23 ára gamall, er langmarkahæsti leikmaður Cercle í belgísku A-deildinni það sem af er tímabilinu með 7 mörk, auk fjögurra marka í Evrópukeppninni. Þá hefur hann skoraði 9 mörk í 38 landsleikjum fyrir Tógó, síðast í 3:0 sigri gegn Miðbaugs-Gíneu í undankeppni Afríkumótsins síðasta sunnudag. Hann fer til bandaríska liðsins um áramótin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert