Dagur Dan Þórhallsson og liðsfélagar hans í Orlando City eru komnir í úrslit Austurdeildarinnar í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu eftir sigur á Atalanta United, 1:0, í Orlando í kvöld.
Orlando mun mæta New York Red Bulls í úrslitum Austurdeildarinnar en sigurliðið mun fara í úrslitaleikinn um MLS-bikarinn.
Dagur Dan var á sínum stað í byrjunarliði Orlando en hann fór af velli þegar tíu mínútur voru eftir.