Vålerenga vann í dag Rosenborg í úrslitaleik norska bikarsins í fótbolta. Lokatölur urðu 1:0 fyrir Vålerenga.
Sædís Rún Heiðarsdóttir lék allan leikinn í vinstri bakverðinum hjá Vålerenga og þá spilaði Selma Sól Magnúsdóttir 70 mínútur á miðjunni hjá Rosenborg.
Það var Sara Horte sem skoraði sigurmark Vålerenga á 61. mínútu eftir sendingu frá Karina Saevik.
Sædís og stöllur eru tvöfaldir meistarar í ár því liðið vann norsku deildina með töluverðum yfirburðum á dögunum. Sædís lauk með þessum leik fyrsta tímabili sínu í atvinnumennskunni og gat ekki byrjað betur.