Sjöundi sigur Fiorentina í röð

Moise Kean heldur áfram að skora á Ítalíu.
Moise Kean heldur áfram að skora á Ítalíu. Ljósmynd/Fiorentina

Fiorentina vann sterkan útisigur á Como í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag, 2:0.

Yacine Adli kom Fiorentina yfir á 19. mínútu áður en Moise Kean bætti við sínu níunda marki á tímabilinu á 68. mínútu. Alberto Dossena fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins.

Albert Guðmundsson lék ekki með Fiorentina í dag vegna meiðsla.

Þetta er í annað sinn í sögu félagsins sem liðið nær að vinna sjö leiki í röð en síðast gerðist það árið 1960 og má segja að Flórensarbúar séu sáttir með sína menn því fögnuðurinn var mikill eftir leik.

Fiorentina er í þriðja sæti deildarinnar með 28 stig, jafnt Atalanta og Inter í toppbaráttunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert