Midtjylland hafði betur gegn Silkeborg, 1:0, í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta á heimavelli sínum í kvöld.
Pólverjinn Adam Buksa skoraði sigurmark Midtjylland á 36. mínútu og sá til þess að liðið jafnaði FC Kaupmannahöfn á toppi deildarinnar með 30 stig eftir 16 leiki.
Elías Rafn Ólafsson stóð í marki Midtjylland og hélt hreinu. Hann var valinn maður leiksins hjá Sofascore þar sem hann fékk 8,1 af 10 mögulegum.