Fræddi Armena um Ísland

Guðmundur Þórarinsson
Guðmundur Þórarinsson Ljósmynd/Alex Nicodim

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Þórarinsson, leikmaður Noah í Armeníu, fræðir stuðningsmenn félagsins um Ísland í myndskeiði sem birtist á Instagram-síðu þess.

Noah mætir Víkingi úr Reykjavík á heimavelli í Sambandsdeildinni á morgun klukkan 17.45 en óvíst er með þátttöku Guðmundar vegna meiðsla.

Á meðal þess sem Guðmundur fer yfir í myndskeiðinu eru norðurljósin, eldgos, álfar og íslenska. Sjón er sögu ríkari en myndskeiðið má sjá hér fyrir neðan.

View this post on Instagram

A post shared by FC NOAH (@noah.footballclub)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka