Suárez áfram í Miami-borg

Luis Suárez, til hægri, ásamt Lionel Messi.
Luis Suárez, til hægri, ásamt Lionel Messi. AFP/Chris Arjoon

Úrúgvæski knattspyrnusnillingurinn Luis Suárez hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Inter Miami. 

Suárez, sem er 37 ára gamall, gekk í raðir félagsins fyrir rúmu ári og hefur skorað 25 mörk í 37 leikjum. 

Hjá Inter Miami er hann með fyrrverandi liðsfélögum sínum hjá Barcelona Lionel Messi, Jordi Alba og Sergio Busquets en Javier Mascherano, sem var liðsélagi allra hjá Barcelona, mun taka við liðinu fyrir næstu leiktíð. 

Inter Miami vann bandarísku deildarkeppnina sannfærandi en datt óvænt út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar gegn Atlanta United. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka