Albert Guðmundsson verður ekki með Fiorentina gegn Pafos frá Kýpur í 4. umferð Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í Flórens í kvöld.
Þetta staðfesti Raffaele Palladino, þjálfari liðsins. Þá mun teymi Fiorentina reyna að gera Íslendinginn kláran fyrir stórleikinn gegn Inter næstkomandi sunnudag.
Albert hefur verið fjarverandi í rúmar fimm vikur en þrátt fyrir það er lið Fiorentina í fantaformi og í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar, stigi á eftir toppliði Napolí.