Argentínski knattspyrnumaðurinn umdeildi, Mauro Icardi, er byrjaður með skilnaðarlögfræðingi sínum Angelu Burgos.
Frá þessu greinir Corriere della Sera en Icardi skildi við eiginkonu sína Wöndu Nara í fyrra eftir erfið ár í hjónabandinu.
Icardi var á sínum tíma einn besti framherji Evrópu en nú leikur hann með Galatasaray í Tyrklandi.
Hann hefur verið mikið í sviðsljósinu utanvallar vegna ástarmála en þegar hann byrjaði að hitta Wöndu á sínum tíma var hún gift Maxi Lopez sem var á þeim tíma einn besti vinur Icardi.