Í starf njósnara fyrir danskt félag

Vigfús Arnar Jósefsson á hliðarlínunni.
Vigfús Arnar Jósefsson á hliðarlínunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnuþjálfarinn Vigfús Arnar Jósefsson er kominn í nýtt starf hjá danska úrvalsdeildarfélaginu Lyngby. 

Vigfús mun njósna um leikmenn á Íslandi og fylgjast með markaðnum hér fyrir Lyngby. 

Lyngby er mikið Íslendingafélag en Freyr Alexandersson var þjálfari karlaliðsins frá 2021 til ársbyrjunar 2024. Þá leikur Sævar Atli Magnússon hjá félaginu en undanfarin ár hafa Andri Lucas Guðjohnsen, Alfreð Finnbogason og Kolbeinn Birgir Finnsson allir verða á mála hjá Lyngby. 

Vigfús var þjálfari Leiknis í fyrrasumar og fyrrihluta sumarsins í ár. Hann varð síðan aðstoðarþjálfari hjá KR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka