Brasilía vann Ástralíu, 3:1, í vináttulandsleik þjóðanna í knattspyrnu kvenna í Brisbane í Ástralíu í dag.
Amanda Gutierres skoraði fyrstu tvö mörk Brasilíu en Gio Garbelini skoraði þriðja mark liðsins.
Caitlin Foord skoraði þá mark Ástralíu.
Liðin mætast aftur í Gold Coast í Queensland í Ástralíu næstkomandi sunnudag. Brasilía er í áttunda sæti heimslista FIFA en Ástralía er í 15. sæti, tveimur sætum á eftir Íslandi.