Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur skrifað undir samning við RB Leipzig sem leikur í efstu deild Þýskalands.
Emilía skrifaði undir samning til 30. júní 2028 og kemur til liðsins frá Nordsjælland í Danmörku. Hún var markahæsti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, varð bæði danskur meistari og bikarmeistari með Nordsjælland, og á að baki fjóra landsleiki.
Hún er 19 ára gamall sóknarmaður og hefur skorað sjö mörk og lagt eitt upp í 14 leikjum í dönsku deildinni á þessu tímabili og skorað tvö mörk í tveimur bikarleikjum. Alls hefur Emilía skorað 25 mörk í 73 leikjum með Nordsjælland í úrvalsdeildinni.
Leipzig er í sjötta sæti af tólf liðum í þýsku 1. deildinni. Í deildinni leika einnig þrír samherjar Emilíu í íslenska landsliðinu, þær Glódís Perla Viggósdóttir með meisturum Bayern München, Sveindís Jane Jónsdóttir með bikarmeisturum Wolfsburg og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir með Leverkusen.
✍️✨ Emilía Ásgeirsdóttir wechselt zu RB Leipzig!
— RB Leipzig (@RBLeipzig) December 27, 2024
Die 19-jährige kommt vom dänischen Erstligisten FC Nordsjaelland.
Emilía gewann 23/24 die dänische Meisterschaft, wurde Torschützenkönigin und holte den Pokal. 🏆
Wir wünschen dir einen erfolgreichen Start!