Luka Modric, hinn 39 ára gamli miðjumaður Real Madrid og einn besti knattspyrnumaður heims um árabil, skoraði langþráð mark í kvöld.
Hann gerði eitt marka Real Madrid þegar liðið vann auðveldan útisigur á D-deildarliðinu Deportivo Minera, 5:0, í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar.
Þar með náði Króatinn snjalli loksins að skora sitt fyrsta mark í þessari keppni en þetta var hans þrítugasti leikur í henni frá árinu 2012. Samtals hefur Modric leikið 562 mótsleiki fyrir Real Madrid og 895 leiki á ferlinum.
Arda Güler, Tyrkinn ungi, skoraði tvö markanna og þeir Federico Valverde og Eduardo Camavinga eitt hvor.