Búið að vera mjög erfitt

Jón Dagur Þorsteinsson bíður enn eftir fyrsta markinu hjá Hertha …
Jón Dagur Þorsteinsson bíður enn eftir fyrsta markinu hjá Hertha Berlín. Ljósmynd/Alex Nicodim

Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur ekki unnið sér inn fast sæti í byrjunarliði þýska liðsins Hertha Berlín síðan hann gekk í raðir félagsins frá OH Leuven í Belgíu í sumar.

Sóknarmaðurinn hefur aðeins sex sinnum verið í byrjunarliði Berlínarliðsins og enn ekki tekist að skora mark.

Þá hefur gengi liðsins verið undir væntingum því Hertha er í 12. sæti með 22 stig eftir 17 leiki. Þrátt fyrir það er uppaldi HK-ingurinn ekki af baki dottinn.

„Það dreymir alla í liðinu um að fara upp um deild. Við höfum ekki gefið þann draum upp á bátinn,“ sagði Jón Dagur í samtali við DPA frá æfingabúðum Herthu á Spáni.

Allir þekkja alla á Íslandi

„Við verðum að halda í jákvæðnina. Við vorum hins vegar ekki nægilega góðir fyrri hluta tímabilsins. Við verðum að laga það og þá er enn möguleiki á að fara upp,“ sagði Jón.

Hann viðurkenndi að það væri erfitt að bíða eftir fyrsta markinu hjá nýju liði í nýju landi. „Það er búið að vera mjög erfitt. Það kemur samt. Það er alltaf léttir að skora fyrsta markið,“ sagði landsliðsmaðurinn.

Hann var síðan spurður út í Eyjólf Sverrisson, goðsögn hjá Herthu Berlín, og Martin Hermannsson, sem leikur með körfuknattleiksfélaginu Alba Berlín.

„Ísland er svo lítið að allir þekkja alla,“ sagði Jón Dagur léttur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert