Völdu Frederik en ekki Frey

Freyr Alexandersson var nefndur til sögunnar sem mögulegur þjálfari Bröndby.
Freyr Alexandersson var nefndur til sögunnar sem mögulegur þjálfari Bröndby. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frederik Birk hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs danska knattspyrnufélagsins Bröndby en Freyr Alexandersson var á meðal þeirra sem höfðu verið orðaðir við stöðuna.

Bröndby sótti ekki vatnið yfir lækinn því Birk, sem er 35 ára gamall, var aðstoðarþjálfari liðsins og tók við því til bráðabirgða í desember eftir að félagið rak Jesper Sörensen.

Undir hans stjórn vann Bröndby sigur á AGF, 4:2, í bikarkeppninni en liðið er í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar eftir 17 umferðir af 32, sex stigum á eftir FC Köbenhavn og Midtjylland sem eru í toppsætunum í vetrarfríinu.

Freyr hefur sjálfur mest verið orðaður við norsku félögin Brann og Molde síðustu daga, ásamt því að vera einn af mögulegum kandídötum sem næsti þjálfari karlalandsliðs Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert