Spánverjinn Alejandro Balde, bakvörður Barcelona, segist hafa orðið fyrir kynþáttaníði af hálfu stuðningsmanna Getafe en liðin mættust í efstu deild spænksa fótboltans í gær.
Leiknum lauk með 1:1 jafntefli en Balde segir að atvikið hafi átt sér stað í fyrri hálfleik leiksins og að hann hafi strax látið dómara leiksins, Pablo Gonzales Fuertes, vita hvað hafði átt sér stað.
„Ég lenti í nokkrum atvikum þar sem ég varð fyrir kynþáttaníði,“ sagði Balde eftir leikinn í gær.
„Það er ömurlegt að svona haldi áfram að gerast. Ég lét dómarann vita af því sem gerðist í fyrri hálfleiknum. Hann greip til verklagsreglna deildarinnar í seinni hálfleik en ég veit samt ekki alveg hvernig það virkar hérna,“ sagði Balde.
Þessar verklagsreglur sem Balde vísar í eru reglur sem spænska knattspyrnusambandið kom á laggirnar fyrir tímabilið. Kynþáttaníð er ekki nýtt af nálinni á Spáni og hefur því sambandi sett þessar reglur.
Samkvæmt handbók deildarinnar má dómari stöðva leikinn ef hann verður var við kynþáttaníð eða ef leikmaður tilkynnir honum um slíkt á meðan leik stendur. Lesin var tilkynning í hátalarakerfi vallarins í gær þar sem áhorfendum var gert ljóst að leikurinn yrði stöðvaður og leikmenn myndu ganga af velli ef áhorfendur létu ekki af þessum ósið.
Pablo Gonzales Fuertes, dómari leiksins, skrifaði eftirfarandi í skýrslu sína eftir leikinn:
„Á meðan ég var inni á vellinum eftir að hafa flautað til hálfleiks kom leikmaður númer 3 í gestaliðinu (Balde) til aðstoðarmanns míns og lét vita af kynþáttaníði sem var beint gegn honum. Þegar ég kom inn í búningsklefa lét ég fulltrúa beggja liða vita af atvikinu sem og öryggisgæslu á vellinum og bað þau að setja í gang verklagsreglur gegn kynþáttaníði áður en seinni hálfleikur færi í gang.“
Hansi Flick, knattspyrnustjóri Barcelona, tjáði sig um málið eftir leikinn og átti vart til orð yfir hegðun þessara áhorfenda.
„Það er ekkert pláss fyrir þetta í fótbolta eða í lífinu almennt. Þetta er ótrúlegt, þetta er svo rangt. Þeir verða að vera eftir heima og fara ekki á leiki. Við verðum að berjast gegn þeim, líka fólkið sem er í kringum þá, þau geta líka gert eitthvað. Svona viljum við ekki lifa saman,“ sagði Flick.
Ef spænska knattspyrnusambandið nær að sanna að ásakanir Balde voru byggðar á sterkum grunni má búast við að Getafe verði sett í heimaleikjabann.