Í liði vikunnar í Hollandi

Elías Már Ómarsson í leik með NAC Breda.
Elías Már Ómarsson í leik með NAC Breda. AFP/Maurice van Steen

Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson er í liði vikunnar í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hjá ESPN eftir að hann skoraði í 2:1-sigri NAC Breda á Twente um liðna helgi.

Elías Már kom Breda í 2:0 með laglegri afgreiðslu á lofti og hefur nú skorað sex mörk í 18 deildarleikjum á tímabilinu, þar af fjögur í síðustu fjórum leikjum.

Hann er lykilmaður í fremstu víglínu hjá Breda, sem er nýliði í hollensku úrvalsdeildinni en situr í níunda sæti, nær Evrópubaráttu en fallbaráttu.

Markið laglega sem Elías Már skoraði um helgina má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert