Freyr sagður horfa til Ítalíu

Bjarki Steinn Bjarkason í leik með landsliðinu.
Bjarki Steinn Bjarkason í leik með landsliðinu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Knattspyrnumaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason er á óskalista norska úrvalsdeildarfélagsins Brann.

Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Freyr Alexandersson var ráðinn þjálfari norska stórliðsins á dögunum.

Bjarki Steinn, sem er 24 ára gamall, er samningsbundinn Venezia í ítölsku A-deildinni en hann gekk til liðs við ítalska félagið frá ÍA, haustið 2020.

Hann hefur komið við sögu í fimm leikjum með liðinu í A-deildinni á tímabilinu, eftir að hafa misst af fyrstu 12 leikjunum vegna meiðsla, en alls lék hann 35 leiki með liðinu í B-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim þrjú mörk.

Bjarki Steinn er samningsbundinn Venezia út keppnistímabilið 2026-27 en hann á að baki fjóra A-landsleiki fyrir Ísland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert