Telst enn frekar ungur þá

Gísli Gottskálk Þórðarson kynntur til leiks á glæsilegum leikvangi Lech …
Gísli Gottskálk Þórðarson kynntur til leiks á glæsilegum leikvangi Lech Poznan. Ljósmynd/Lech Poznan

Knattspyrnumaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson skrifaði á dögunum undir fjögurra og hálfs árs samning við Lech Poznan, sem er á toppnum í efstu deild Póllands.

Gísli, sem er tvítugur, var keyptur frá Víkingi úr Reykjavík á hálfa milljón evra samkvæmt félagaskiptavefnum Transfermarkt, en það jafngildir um 73,4 milljónum íslenskra króna.

„Núna þegar ég er kominn hingað er markmiðið einfalt. Það er að koma mér inn í þetta lið. Ég er búinn að skrifa undir langtímasamning þannig að markmið mitt er að verða á einhverjum tímapunkti lykilmaður í liðinu.  

Spila alla leiki, berjast um toppsætin og vonandi spila einhverja Evrópuleiki. Þannig að það er einfalt markmið, að koma sér inn í liðið og verða mikilvægur hluti af þessu risafélagi,“ sagði hann í samtali við mbl.is.

Helst allt í hendur

Til framtíðar kvaðst miðjumaðurinn vera með enn stærri markmið.

„Ég held að það haldist allt rosalega í hendur ef ég næ þessum markmiðum sem ég nefndi, að verða mikilvægur leikmaður og spila alla leiki hjá svona stóru liði. Eftir þrjú ár er ég bara 23 ára og þá er maður enn þá talinn frekar ungur. 

Ef það gengur upp þá verð ég vonandi nálægt A-landsliðinu og þá er líka möguleiki á því að taka enn stærra skref. Í grunninn snýst þetta um að spila eins mikið og gera eins vel og hægt er hér. 

Það verður ekki auðvelt, ég veit það alveg. Þetta er rosalegt umhverfi, mjög krefjandi umhverfi, þannig að ég þarf að byrja á að ná góðum tökum á því,“ sagði Gísli einnig.

Ítarlegt viðtal við Gísla birtist á íþróttasíðum Morgunblaðsins á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert