Landsliðsmaðurinn skiptir um félag á Ítalíu

Mikael Egill Ellertsson, til vinstri, fagnar eftir að hafa skorað …
Mikael Egill Ellertsson, til vinstri, fagnar eftir að hafa skorað fyrir Venezia gegn Juventus í vetur. AFP/Marco Bertorello

Ítalska knattspyrnufélagið Genoa er í þann veginn að ganga frá kaupum á landsliðsmanninum Mikael Agli Ellertssyni en bæði félögin leika í A-deildinni þar í landi.

Fréttamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að Mikael muni gangast undir læknisskoðun hjá Genoa á morgun og skrifa undir samning í kjölfarið en hann verði síðan lánaður aftur til Venezia út þetta tímabil.

Mikael, sem er 22 ára gamall, hefur leikið 21 leik með Venezia í A-deildinni í vetur og skorað tvö mörk en á síðasta tímabili spilaði hann 37 leiki með liðinu í B-deildinni og skoraði tvö mörk.

Hann hefur verið á Ítalíu frá árinu 2018, fyrst með SPAL og Spezia en með Venezia frá ársbyrjun 2023.

Genoa er í 12. sæti ítölsku A-deildarinnar og leikur undir stjórn Frakkans Patricks Vieira, sem gerði garðinn frægan með Arsenal á árum áður. Venezia er hins  vegar í 19. og næstneðsta sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert