Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen hafa samið við argentínska knattspyrnumanninn Emiliano Buendía um að leika með liðinu að láni frá enska félaginu Aston Villa út yfirstandandi tímabil.
Buendía er 28 ára sóknartengiliður og kantmaður sem hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Villa á tímabilinu.
Leverkusen var í leit að sóknarsinnuðum leikmanni eftir að Frakkinn Martin Terrier sleit hásin og verður af þeim sökum frá út tímabilið.