Jafn góðar vinkonur þrátt fyrir samkeppni 

Telma Ívarsdóttir er gengin til liðs við Rangers.
Telma Ívarsdóttir er gengin til liðs við Rangers. Ljósmynd/Rangers

Telma Ívarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, samdi í síðustu viku við skoska stórliðið Rangers. Hún unir hag sínum vel í Glasgow og hefur þegar komið sér vel fyrir. 

Það gengur bara mjög vel. Það tekur allt sinn tíma, að flytja og fá öll þessi leyfi sem þú þarft. Í Bretlandi þarf ég að fá atvinnuleyfi en að koma sér fyrir gengur bara mjög vel. Ég er gríðarlega ánægð og mér líður mjög vel. Auðvitað tekur allt tíma. 

Það mun alveg taka mig tvær vikur að koma mér í almennilega rútínu og komast svona almennilega inn í þetta. Fyrir utan það þá gengur allt mjög vel,“ sagði Telma í samtali við mbl.is.

Landsliðsmarkvörðurinn til Skotlands

Eftir að Telma samdi við Rangers eru allir þrír markverðir íslenska landsliðsins orðnir atvinnumenn. Cecilía Rán Rúnarsdóttir gerir það gott með Inter Mílanó á Ítalíu og Fanney Inga Birkisdóttir samdi við Häcken í Svíþjóð í október síðastliðnum. 

Ótrúlega stolt af okkur

Samkeppnin á milli markvarðanna þriggja er því gífurleg hjá landsliðinu. 

Samkeppni er náttúrlega alltaf góð, þú vilt alltaf vera í samkeppni. Annars er erfitt fyrir þig að ætla að bæta þig eitthvað ef það er aldrei nein samkeppni. Ég er gríðarlega ánægð með stelpurnar. 

Við erum allar búnar að standa okkur fáránlega vel þannig að ég er ótrúlega stolt af okkur öllum og til dæmis ánægð fyrir mína hönd og Fanneyjar að vera að fara út núna, að taka þetta skref. 

Samkeppnin verður alltaf sú sama en við verðum alltaf jafn góðar vinkonur þrátt fyrir það, sagði Telma um landsliðsmarkverðina. 

Ítarlegt viðtal við Telmu birtist á íþróttasíðum Morgunblaðsins á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert