Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur boðið í ensku landsliðskonuna Chloe Kelly, sem leikur með nágrönnunum í Manchester City.
Breska ríkisútvarpið greinir frá en ekki er vitað að svo stöddu hvort um kaup- eða lánstilboð sé að ræða.
Kelly vill ólm komast burt frá Man. City þar sem hún hefur einungis byrjað einn leik í ensku A-deildinni og talað opinskátt um að framtíð sín liggi annars staðar.
Samningur hennar rennur út í sumar en Kelly skrifaði á Instagram-aðgangi sínum í vikunni að hún vildi losna frá Man. City sem fyrst þar sem hún óttist að missa sæti sitt í enska landsliðinu.
England á titil að verja á EM 2025 í Sviss í sumar en Kelly skoraði einmitt sigurmarkið í úrslitaleik gegn Þýskalandi á EM 2022 sem fór fram á Englandi.