Orri Steinn Óskarsson og samherjar hans í Real Sociedad mæta Elíasi Rafni Ólafssyni og samherjum í Midtjylland í umspili Evrópudeildar karla í knattspyrnu en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Sviss rétt í þessu.
Leikirnir í umspilinu fara fram 13. og 20. febrúar. Þann 21. febrúar verður síðan dregið til 16-liða úrslitanna.
Sigurliðið í einvíginu mun mæta annað hvort Manchester United eða Tottenham í sextán liða úrslitum.
Þessi lið mætast í umspilinu:
Ferencváros - Viktoria Plzen
Porto - Roma
AZ Alkmaar - Galatasaray
Midtjylland - Real Sociedad
Royale Union - Ajax
PAOK Saloniki - FCSB Búkarest
Twente - Bodö/Glimt
Fenerbahce - Anderlecht
Þessi lið geta í framhaldi af því mæst í 16-liða úrslitunum:
Ferencváros eða Viktoria - Lazio eða Athletic Bilbao
Porto eða Roma - Lazio eða Athletic Bilbao
Royale Union eða Ajax - Eintracht Frankfurt eða Lyon
PAOK eða FCSB - Eintracht Frankfurt eða Lyon
AZ eða Galatasaray - Manchester United eða Tottenham
Midtjylland eða Real Sociedad - Manch.Utd eða Tottenham
Fenerbahce eða Anderlecht - Rangers eða Olympiacos
Twente eða Bodö/Glimt - Rangers eða Olympiacos