Kristian lánaður til Rotterdam

Kristian Nökkvi Hlynsson er kominn til Spörtu frá Rotterdam.
Kristian Nökkvi Hlynsson er kominn til Spörtu frá Rotterdam. Ljósmynd/Sparta Rotterdam

Knattspyrnumaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson hefur verið lánaður frá Ajax til Spörtu í  Rotterdam en bæði lið leika í efstu deild Hollands. Gildir samningurinn út leiktíðina.

Kristian var í stóru hlutverki hjá Ajax á síðustu leiktíð en hefur mikið vermt varamannabekkinn á yfirstandandi leiktíð.

Hann er samningsbundinn Ajax til sumarsins 2026 en hann gekk ungur að árum í raðir Ajax árið 2020.

Maurice Steijn er knattspyrnustjóri Spörtu en hann var stjóri Kristians hjá Ajax og þekkir íslenska miðjumanninn vel.

Sparta er í 16. sæti af 18 liðum í hollensku úrvalsdeildinni með 17 stig eftir 20 leiki og í fallbaráttu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert