Vigdís samdi í Belgíu

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir er gengin til liðs við belgísku meistarana …
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir er gengin til liðs við belgísku meistarana í Anderlecht. Ljósmynd/Anderlecht

Belgíska knattspyrnufélagið Anderlecht hefur fest kaup á sóknarmanninum Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur frá uppeldisfélaginu Breiðabliki. Skrifaði hún undir tveggja og hálfs árs samning, til sumarsins 2027.

Anderlecht hefur orðið belgískur meistari undanfarin sjö tímabil en er sem stendur í öðru sæti A-deildarinnar, einu stigi á eftir Diljá Ýr Zomers og stöllum í Leuven.

Vigdís Lilja, sem er 19 ára gömul, var einn af lykilmönnum Breiðabliks á síðasta tímabili þegar liðið varð Íslandsmeistari.

Hún skoraði þá 11 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni en Vigdís Lilja getur leyst allar stöður framarlega á vellinum.

Alls á Vigdís Lilja að baki 62 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 16 mörk. Þar af eru fjórir leikir og tvö mörk fyrir Keflavík þar sem Vigdís Lilja lék að láni hluta sumarsins 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert