Ísak skoraði með glæsilegu langskoti (myndskeið)

Ísak Bergmann í leiknum í dag.
Ísak Bergmann í leiknum í dag. Ljósmynd/Düsseldorf

Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði fyrsta mark Düsseldorf er liðið lagði Ulm, 3:2, á heimavelli í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Mark Ísaks var af dýrari gerðinni því miðjumaðurinn skoraði með glæsilegu langskoti strax á níundu mínútu. Þetta er hans sjöunda mark í 20 leikjum liðsins á tímabilinu.

Düsseldorf er í fjórða sæti deildarinnar og í hörðum slag um að fara upp í efstu deild.

Markið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert