Bikarmeistarar Wolfsburg unnu góðan heimasigur á Jena, 3:0, í efstu deild kvenna í þýska fótboltanum í kvöld.
Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á 57. mínútu en með sigrinum er Wolfsburg í þriðja sæti með 31 stig.
Á toppnum er óvænt lið Frankfurt með stigi meira en Þýskalandsmeistarar Bayern München, þar sem Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði, eru í öðru með jafnmörg stig og Frankfurt.
Bayer Leverkusen, þar sem Karólína Lea Vilhjálmsdóttir spilar, er síðan í fjórða sæti með 29 stig.