Markaregn hjá Börsungum

Börsungar hafa átt magnað tímabil.
Börsungar hafa átt magnað tímabil. AFP/José Jordan

Karlalið spænska knattspyrnustórveldisins Barcelona hefur skorað 109 mörk í 35 leikjum á tímabilinu. 

Það eru einu marki minna en liðinu tókst að skora á öllu tímabilinu í 53 leikjum í fyrra. 

Börsungar unnu Valencia 5:0 á útivelli í spænska bikarnum í gærkvöldi. Undir lok síðasta mánaðar vann Barcelona Valencia 7:1 í deildinni og hefur því skorað 12 mörk gegn liðinu í tveimur leikjum. 

Barcelona hefur þá einnig skorað fjögur mörk eða fleiri í sex af síðustu tíu leikjum sínum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert