Eiður Smári ekki með gegn Dönum

Eiður Smári Guðjohnsen leikur ekki með landsliðinu á Parken.
Eiður Smári Guðjohnsen leikur ekki með landsliðinu á Parken. Árni Torfason

Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, hefur dregið sig út úr landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Dönum sem fram fer í Kaupmannahöfn næsta miðvikudag. Á vef KSÍ segir að þetta sé af persónulegum ástæðum.

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur valið Eyjólf Héðinsson, leikmann GAIS í Svíþjóð í hans stað en Eyjólfur hefur ekki áður verið valinn í A-landsliðshópinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert