Steinþór Guðbjartsson skoðaði verkið í Winnipeg og gluggaði í ótrúlega sögu liðsins sem var skipað leikmönnum af annarri kynslóð Íslendinga í Vesturheimi og þurfti að líða fyrir upprunann.">

"Fálkarnir um alla framtíð"

Mál­verk af Ólymp­íu- og heims­meist­ur­um Fálk­anna frá Winnipeg í Kan­ada í ís­hokkíi verður af­hjúpað á sýn­ingu í "Íslands­hús­inu" í Salt Lake City í Banda­ríkj­un­um í tengsl­um við Vetr­arólymp­íu­leik­ana, sem verða sett­ir í borg­inni 8. fe­brú­ar nk. Steinþór Guðbjarts­son skoðaði verkið í Winnipeg og gluggaði í ótrú­lega sögu liðsins sem var skipað leik­mönn­um af ann­arri kyn­slóð Íslend­inga í Vest­ur­heimi og þurfti að líða fyr­ir upp­run­ann.

Lof­sam­leg um­mæli

Keppn­in á Ólymp­íu­leik­un­um í Antwerpen var jafn­framt heims­meist­ara­keppni. Kan­ada vann Tékkó­slóvakíu 15-0 í út­slátt­ar­keppni, Banda­rík­in 2-0 í undanúr­slit­um og Svíþjóð 12-1 í úr­slita­leik. Banda­rík­in urðu í öðru sæti eft­ir sig­ur á Svíþjóð og Tékkó­slóvakíu en Tékkó­slóvakía vann Svíþjóð í keppni um bronsið. Auk þess voru Belg­ía, Frakk­land og Eng­land með í keppn­inni eða all­ar helstu ís­hokkíþjóðir heims að und­an­skild­um Sov­ét­ríkj­un­um og Þýskalandi.

Þegar sig­ur Fálk­anna í nafni Kan­ada var í höfn í Antwerpen sam­einaðist kanadíska þjóðin um fyrstu Ólymp­íu­meist­ar­ana í ís­hokkí.

Í rit­stjórn­ar­grein The Winnipeg Tri­bu­ne kom m.a. fram að frami Fálk­anna væri aðdá­un­ar­verður. Liðið hefði þurft að beita kjafti og klóm til að fá inn­göngu í úr­vals­deild í Manitoba en væri nú frækn­asta lið áhuga­manna í heim­in­um.

Vest­ur-ís­lenska blaðið Heimskringla sagði m.a. á forsíðu 23. apríl 1920 að fregn­in um ár­ang­ur­inn á Ólymp­íu­leik­un­um ætti að fylla hjörtu allra Íslend­inga með gleði og stolti, "vegna þess að það eru dreng­irn­ir þeirra, sem frækn­ast­ir hafa reynst og þannig svarið sig í kyn forfeðranna á sögu­öld­inni. En hin Cana­diska þjóð í heild sinni má vera upp með sér af flokkn­um, sem hún sendi yfir hafið...Fálk­ar! Vér þökk­um yður í nafni tveggja þjóða hina hraustu fram­göngu og heims­frægðina."

Í Lög­bergi 29. apríl 1920 kom fram að menn hefðu verið sann­færðir um að "þess­ir Íslend­ing­ar hefðu til að bera hreysti, list­fengi, hug­rekki, staðfestu og óbilandi viljaþrek til þess að sigra í kapp­leikn­um, landi sínu, þjóð sinni og sjálf­um sér til sóma." Frétt­in um sig­ur­inn hefði farið eins og logi yfir akur frá hafi til hafs í Kan­ada og lög­gjaf­ar þjóðar­inn­ar í þingsal rík­is­ins í Ottawa hefðu gleymt rétt í svip hvar þeir væru þegar þingmaður frá Winnipeg hefði fært þeim frétt­irn­ar. Þeir "spruttu á fæt­ur, veifuðu klút­um eða hverju helzt öðru, sem hand­hægt var, og hrópuðu þre­falt húrra fyr­ir Fálk­un­um."

Fálk­arn­ir aft­ur hunsaðir

Ron Lemieux, íþrótta­málaráðherra Manitoba, tek­ur í sama streng, en fyr­ir skömmu sæmdi hann dæt­ur þriggja leik­manna Fálk­anna Íþrótta­heiður­s­nafn­bót Manitoba, Sport Manitoba's Or­der of Ex­ellence, vegna fram­göngu feðranna. Hann seg­ir að á sín­um tíma hafi liðið verið mis­rétti beitt vegna upp­runa leik­mann­anna og ákvörðun Íshokkí­s­am­bands­ins varðandi Toronto Granites á leik­un­um í Salt Lake City sé sem salt í sár­in.

Dr. John Fredrickson, son­ur Franks, fyr­irliða Fálk­anna, seg­ir aug­ljóst að Íshokkí­s­am­bandið hafi verið að reyna að end­ur­rita sög­una með því að segja að ís­hokkí hafi verið sýn­ing­ar­grein á sum­ar­leik­um 1920 og Granites hafi orðið Ólymp­íu­meist­ari á fyrstu Vetr­ar­leik­un­um, en staðreynd­in sé að Fálkar­an­ir hafi verið fyrstu Ólymp­íu­meist­ar­arn­ir í ís­hokkí og því verði ekki breytt.

Bri­an Johann­es­son, son­ur varn­ar­manns­ins Konnie Johann­es­son, ákvað fyr­ir skömmu að gefa keppn­istreyju föður síns og aðra hluti í ís­hokkífrægðar­setrið, The Hockey Hall of Fame, í Toronto. Þangað komi a.m.k. 100.000 manns á ári, sem hafi aldrei heyrt um Fálk­ana, en nú­kom­ist þeir ekki hjá því.

Þjóðaríþrótt­in

Fé­lagið var nán­ast gjaldþrota eft­ir tíma­bilið 1911 til 1912, hóp­ur­inn tvístraðist og fylla þurfti í skörðin með yngri mönn­um.

Frank Fredrickson byrjaði snemma að fylgj­ast með eldri leik­mönn­um, reyndi að líkja eft­ir þeim heima og sýndi fljót­lega að hann var fædd­ur sig­ur­veg­ari. Fred Thor­d­ar­son, einn af stofn­end­um Fálk­anna og stjórn­ar­maður, seg­ir í grein sem dótt­ir hans, Shir­ley Thor­d­ar­son McCree­dy und­ir­bjó til prent­un­ar í The Icelandic Cana­di­an 1996, að faðir Franks hafi út­búið svell í bak­g­arði heim­il­is þeirra við Dom­ini­on Street þar sem Frank og fé­lag­ar hans í ná­grenn­inu hafi æft sig. Það hafi verið sterk­asta und­ir­staðan í þjálf­un leik­manns­ins, sem átti eft­ir að slá í gegn í hópi áhuga­manna og síðar at­vinnu­manna. Þetta minn­ir óneit­an­lega á sögu Wayne Gretzky, ókrýnds kon­ungs íþrótt­ar­inn­ar, sem nú er fram­kvæmda­stjóri Ólymp­íuliðs Kan­ada, en glæst­ur fer­ill hans hófst í bak­g­arðinum heima í Ont­ario.

Frank og Konnie Johann­es­son bætt­ust í hóp Fálk­anna 1912 og ári síðar komu bræðurn­ir Har­vey og Bobby Ben­son, en 1914 varð Wally Byron markvörður Fálk­anna. Það tíma­bil var Frank Fredrickson markakóng­ur liðsins, sem varð deilda­meist­ari. Vegna fyrri heims­styrj­ald­ar­inn­ar ákvað Íshokkí­s­am­band Manitoba að keppt yrði í tveim­ur riðlum í sex liða deild í fylk­inu tíma­bilið 1915 til 1916 enda ljóst að marg­ir leik­menn yrðu fjar­ver­andi vegna stríðsins í Evr­ópu. Frank Fredrickson varð markakóng­ur deild­ar­inn­ar en Fálk­arn­ir urðu í öðru sæti.

Þegar 196. her­deild há­skóla í Vest­ur-Kan­ada var stofnuð gekk Frank Frederickson í hana, en skömmu síðar flutti hann sig yfir í 223. her­deild­ina, sem var skipuð Kan­ada­mönn­um af skandi­nav­ísk­um upp­runa, þar á meðal liðsmönn­um Fálk­anna. Her­deild­in æfði í Porta­ge la Praire og fyrr­ver­andi leik­menn Fálk­anna náðu að vera með hokkíæf­ing­ar sam­fara heræf­ing­un­um. Tíma­bilið 1916 til 1917 voru aðeins þrjú lið í ís­hokkí­deild­inni í Manitoba og þar á meðal lið 223. her­deild­ar­inn­ar, en leik­irn­ir fóru fram í Winnipeg, um 80 km frá Porta­ge la Praire. Her­deild­in varð í 2. sæti og enn var Frank Fredrickson markakóng­ur deild­ar­inn­ar, en skömmu eft­ir að keppni lauk sigldi her­deild­in til Eng­lands. Þaðan fóru fé­lag­arn­ir Frank Fredric­son og Konnie Johann­es­son til Kaíró til að starfa við flug­skóla en hug­ur­inn var að hluta til heima í Manitoba. "Ég vildi svo sann­ar­lega vera í Winnipeg vegna hokkís­ins en næst­besti kost­ur­inn er að vera í flug­hern­um," skrifaði Frank Fredrickson í bréfi heim.

End­ur­koma Fálk­anna

Fé­lags­and­inn var í há­veg­um hafður, einn fyr­ir alla og all­ir fyr­ir einn.

En einn hæng­ur var á. Fé­lagið sótti um aðgang að Winnipeg­deild­inni, en um­sókn­inni var stöðugt hafnað þar sem for­svars­menn deild­ar­inn­ar töldu liðið ekki nógu gott til að vera í 1. deild. Málið vakti mikla at­hygli í fjöl­miðlum og svo fór að fyr­ir tíma­bilið 1919 til 1920 var mynduð önn­ur 1. deild með Fálk­un­um, Sel­kirk og Brandon.

Fálk­arn­ir vissu hvað þeir gátu en þeir voru jarðbundn­ir og mikluðust ekki af af­rek­um sín­um. Þrátt fyr­ir ör­ugga sigra töluðu þeir ekki um meist­ara­titil, en Fred Thor­d­ar­son seg­ir í fyrr­nefndri grein að úr­slita­leik­ur­inn við Sel­kirk standi öðrum leikj­um fram­ar. Sel­kirk komst í 5-1, en Fálk­arn­ir náðu að jafna og unnu í fram­leng­ingu.

Fálk­arn­ir mættu The Winnipegs í keppni um Manitoba­titil­inn og unnu ör­ugg­lega, 5-0 og 10-1. Í undanúr­slit­um um meist­ara­titil­inn í Kan­ada unnu Fálk­arn­ir Fort William frá Thund­er Bay 7-2 og 9-1. Fálk­arn­ir fóru því næst til Toronto og mættu liði Toronto-há­skóla í keppni um kanadíska meist­ara­titil­inn, All­an-bik­ar­inn og far­seðil­inn á Ólymp­íu­leik­ana. Fyrri leik­ur­inn vannst auðveld­lega 8-3 en úr­slit­in í þeim seinni urðu 3-2 fyr­ir Fálk­ana. "Þau stórtíðindi gerðust í íþrótta­heim­in­um á mánu­dags­kvöldið að Fálk­arn­ir unnu kon­ung­dóm skautaíþrótt­ar­inn­ar í Can­ada, með því að sigra "Varsity" skauta­flokk­inn í Toronto," sagði Heimskringla, en borg­ar­ráðið í Winnipeg sendi liðinu 500 doll­ara að laun­um og Gray borg­ar­stjóri sendi hópn­um heilla­óska­skeyti í nafni borg­ar­búa. "Toronto-blöðin hæla ís­lenzku skauta­köpp­un­um mjög mikið og segja að aldrei hafi ann­ar slík­ur flokk­ur til Toronto komið, og aðrir eins snill­ing­ar og Frank Frederickson og Magnús Goodm­an séu vand­fundn­ir. All­ir gátu Falcons sér góðan orðstír - hver einn og ein­asti; all­ir voru kapp­ar og hreysti­menn."

Sig­ur­för

Mót­herj­arn­ir fylgd­ust með Fálk­un­um á æf­ing­um og báðu leik­menn­ina um að kenna sér, sem og þeir gerðu þó tím­inn væri naum­ur. J.W. Chave seg­ir í grein í Winnipeg Free Press 1964 að Konnie Johanne­son hafi látið draum Svía um að fagna marki verða að veru­leika þegar hann stýrði pökkn­um með öðrum skaut­an­um í eigið mark. Í grein í sögu­tíma­rit­inu The Bea­ver 1999 er vitnað í orð Frank Fredrickson og haft eft­ir hon­um að Sví­um hafi verið gefið markið. "Sví­arn­ir hrein­lega tryllt­ust. Þeir kölluðu og öskruðu og tók­ust í hend­ur og tóku í hend­urn­ar á okk­ur. Þetta var frá­bært."

Sagt er að Fálk­arn­ir hafi selt Sví­um skautap­ar, sem þeir sögðu að væri með inn­byggðri vél, fyr­ir 100 doll­ara. Au­d­rey Fridfinn­son, frænka Chris Fridfinn­sons og dótt­ir gjald­ker­ans Bill Fridfinn­sons, seg­ir í viðtali við Dav­id Square að hún hafi ekki fengið sög­una staðfesta en trúi að hún sé sönn. "Chris frændi talaði oft um þetta," seg­ir hún. "Þetta voru ung­ir fá­tæk­ir menn og svona upp­hæð hef­ur ör­ugg­lega komið sér vel."

Gulldrengj­un­um var fagnað sem þjóðhöfðingj­um við kom­una til Montreal og Toronto. 22. maí var gefið frí hálf­an dag­inn í Winnipeg svo heima­menn gætu hyllt hetj­urn­ar þegar þær óku sig­ur­hring í opn­um bíl­um í miðbæn­um. Það fór ekki fram hjá nein­um hverj­ir áttu bæ­inn og nöfn þeirra voru á vör­um allra bæj­ar­búa en besti maður­inn var fjarri góðu gamni. Frank Fredrik­son fór til Íslands eft­ir leik­ana vegna flug­mála og kom ekki heim til sín fyrr en síðar. Hann missti því af sig­ur­hringn­um og heiður­s­veisl­um, en hélt eins og sam­herj­arn­ir því sem var mik­il­væg­ast, fyrsta Ólymp­íu­meist­ara­titl­in­um í ís­hokkí.

Leik­menn­irn­ir létu frægðina ekki á sig fá. "Þetta voru venju­leg­ir ung­ir menn sem þótti gam­an að spila ís­hokkí og voru til­bún­ir að leggja allt á sig fyr­ir þjóð sína, hvort sem það var í stríði eða á Ólymp­íu­leik­um," seg­ir Shir­ley Thor­d­ar­son McCree­dy, sem er átt­ræð og þekkti alla leik­menn­ina, var skyld sum­um þeirra og var ná­granni þeirra. "Þeir litu ekki á sig sem hetj­ur held­ur voru þeir jarðbundn­ir sig­ur­veg­ar­ar." Bever­ly Doyle, dótt­ir Wally Byrons, tek­ur í sama streng. "Faðir minn var hreyk­inn af ár­angr­in­um en hann talaði ekki mikið um hann. Hann hafði dæmi­gert ís­lenskt lund­erni - sjálfs­hól var drambi næst."

Shir­ley Thor­d­ar­son McCree­dy seg­ir að lífið í Winnipeg hafi verið erfitt í byrj­un nýliðinn­ar ald­ar og fólk af ís­lensk­um ætt­um hafi t.d. breytt nöfn­um sín­um til að skera sig ekki úr. Íshok­kí­leik­menn­irn­ir hafi þurft að glíma við ákveðið mót­læti en það hafi eflt þá og styrkt. "Með til­liti til umræðunn­ar nú er at­hygl­is­vert að Toronto Granites tapaði fyr­ir liði Toronto-há­skóla sem síðan tapaði fyr­ir Fálk­un­um í keppni um All­an-bik­ar­inn og þátt­töku­rétt á Ólymp­íu­leik­un­um."

End­ur­reisn og niður­lag

Minn­ing­unni haldið á lofti

Tak­markið var að safna 15.000 doll­ur­um fyr­ir Vetr­arólymp­íu­leik­ana. Um nýliðna helgi höfðu nefnd­inni borist um 10.000 doll­ar­ar og dr. Irvin Hjálm­ar Ol­af­son, upp­hafsmaður nefnd­ar­inn­ar og einn helsti maður­inn á bak við átakið, seg­ir að mark­miðinu verði náð. Dan John­son bæt­ir við að átakið haldi áfram um ókomna tíð því stöðugt verði að vekja at­hygli á Fálk­un­um, fram­gangi þeirra og mik­il­vægi. "Auk þess vilj­um við und­ir­strika að ekki er hægt að breyta sög­unni," seg­ir hann.

Öllum Íslend­ing­um boðið

"Það er mik­il­vægt að halda merki Fálk­anna á lofti og Vetr­arólymp­íu­leik­arn­ir í Salt Lake City eru kjör­inn vett­vang­ur til að vekja at­hygli á þeim," seg­ir Daniel John­son um söfn­un­ina og sýn­ing­una um Fálk­ana. Í því sam­bandi bend­ir hann á að fyrstu Íslend­ing­arn­ir, sem fóru til Norður-Am­er­íku, hafi sest að í Utah, bú­set­an og Ólymp­íu­leik­arn­ir tengi Salt Lake og Winnipeg sam­an og í þriðja lagi sé ástæða til að minn­ast þess að 82 ár séu frá því Fálk­arn­ir urðu Ólymp­íu­meist­ar­ar fyrst­ir liða. "Þetta er kær­komið tæki­færi til að halda upp á, styðja og styrkja ís­lenska menn­ing­ar­arf­leifð í Norður-Am­er­íku og á þess­um tíma­mót­um ger­um við það best með því að vekja at­hygli á átak­inu "Fálk­arn­ir um alla framtíð"."

steg@mbl.is

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Staða og úrslit

Meira
L U T Mörk +/- Stig
1 Tindastóll 22 16 6 2134:1931 203 32
2 Stjarnan 22 15 7 2166:1948 218 30
3 Njarðvík 22 15 7 2096:2005 91 30
4 Valur 22 13 9 1944:1896 48 26
5 Grindavík 22 12 10 2064:2016 48 24
6 Álftanes 22 11 11 2014:2032 -18 22
7 ÍR 22 11 11 1946:2029 -83 22
8 Keflavík 22 10 12 2146:2132 14 20
9 KR 22 10 12 2044:2062 -18 20
10 Þór Þ. 22 9 13 2038:2125 -87 18
11 Höttur 22 6 16 1884:2041 -157 12
12 Haukar 22 4 18 1887:2146 -259 8
27.03 Stjarnan 103:110 Njarðvík
27.03 Tindastóll 88:74 Valur
27.03 Þór Þ. 114:119 Keflavík
27.03 Höttur 99:95 Álftanes
27.03 Haukar 80:91 ÍR
27.03 Grindavík 86:83 KR
14.03 Keflavík 107:98 Stjarnan
14.03 ÍR 84:83 Höttur
13.03 KR 103:87 Haukar
13.03 Valur 99:80 Grindavík
13.03 Álftanes 108:96 Þór Þ.
13.03 Njarðvík 101:90 Tindastóll
07.03 Grindavík 122:115 Njarðvík
07.03 Stjarnan 116:76 Álftanes
06.03 ÍR 97:96 KR
06.03 Höttur 103:95 Þór Þ.
06.03 Tindastóll 116:77 Keflavík
06.03 Haukar 81:85 Valur
01.03 Valur 90:87 ÍR
01.03 KR 97:75 Höttur
28.02 Grindavík 101:91 Keflavík
28.02 Þór Þ. 94:91 Stjarnan
28.02 Njarðvík 103:81 Haukar
28.02 Álftanes 102:89 Tindastóll
14.02 KR 89:96 Valur
14.02 ÍR 91:95 Njarðvík
13.02 Tindastóll 109:96 Þór Þ.
13.02 Haukar 95:104 Keflavík
13.02 Höttur 83:86 Stjarnan
12.02 Grindavík 92:94 Álftanes
07.02 Valur 92:58 Höttur
06.02 Njarðvík 103:79 KR
06.02 Þór Þ. 95:104 Grindavík
06.02 Álftanes 107:90 Haukar
06.02 Keflavík 81:90 ÍR
02.02 Stjarnan 82:90 Tindastóll
02.02 Haukar 99:100 Þór Þ.
31.01 KR 97:93 Keflavík
30.01 Grindavík 87:108 Stjarnan
30.01 ÍR 75:94 Álftanes
30.01 Höttur 85:97 Tindastóll
30.01 Valur 88:76 Njarðvík
24.01 Keflavík 70:81 Valur
24.01 Þór Þ. 94:95 ÍR
23.01 Tindastóll 97:79 Grindavík
23.01 Njarðvík 110:101 Höttur
23.01 Álftanes 111:100 KR
23.01 Stjarnan 99:75 Haukar
17.01 Haukar 100:99 Tindastóll
16.01 Njarðvík 107:98 Keflavík
16.01 KR 102:99 Þór Þ.
16.01 Valur 87:81 Álftanes
16.01 Höttur 63:64 Grindavík
16.01 ÍR 103:101 Stjarnan
10.01 Stjarnan 94:86 KR
10.01 Þór Þ. 94:69 Valur
09.01 Grindavík 79:71 Haukar
09.01 Tindastóll 98:88 ÍR
09.01 Keflavík 112:98 Höttur
09.01 Álftanes 75:81 Njarðvík
05.01 Valur 83:79 Stjarnan
03.01 KR 95:116 Tindastóll
03.01 Höttur 86:89 Haukar
02.01 Njarðvík 106:104 Þór Þ.
02.01 Keflavík 87:89 Álftanes
02.01 ÍR 98:90 Grindavík
20.12 Valur 89:80 Tindastóll
19.12 KR 120:112 Grindavík
19.12 Álftanes 89:92 Höttur
19.12 Keflavík 105:86 Þór Þ.
19.12 Njarðvík 90:100 Stjarnan
18.12 ÍR 93:96 Haukar
13.12 Grindavík 97:90 Valur
13.12 Þór Þ. 89:78 Álftanes
12.12 Stjarnan 97:93 Keflavík
12.12 Höttur 79:82 ÍR
12.12 Tindastóll 94:76 Njarðvík
12.12 Haukar 88:97 KR
06.12 Keflavík 120:93 Tindastóll
06.12 Álftanes 77:97 Stjarnan
05.12 KR 95:97 ÍR
05.12 Valur 97:104 Haukar
05.12 Þór Þ. 106:84 Höttur
05.12 Njarðvík 94:87 Grindavík
30.11 Stjarnan 124:82 Þór Þ.
29.11 Keflavík 96:104 Grindavík
29.11 Tindastóll 109:99 Álftanes
29.11 Haukar 74:93 Njarðvík
29.11 ÍR 84:83 Valur
29.11 Höttur 85:88 KR
15.11 Þór Þ. 78:101 Tindastóll
15.11 Njarðvík 96:101 ÍR
14.11 Valur 101:94 KR
14.11 Álftanes 90:88 Grindavík
14.11 Stjarnan 87:80 Höttur
14.11 Keflavík 117:85 Haukar
09.11 Grindavík 99:70 Þór Þ.
08.11 Haukar 86:91 Álftanes
08.11 Höttur 83:70 Valur
08.11 ÍR 79:91 Keflavík
08.11 KR 86:80 Njarðvík
03.11 Tindastóll 92:87 Stjarnan
01.11 Keflavík 94:88 KR
01.11 Þór Þ. 82:81 Haukar
31.10 Álftanes 93:87 ÍR
31.10 Stjarnan 104:98 Grindavík
31.10 Njarðvík 101:94 Valur
31.10 Tindastóll 99:59 Höttur
25.10 Grindavík 90:93 Tindastóll
25.10 Haukar 87:114 Stjarnan
24.10 ÍR 73:84 Þór Þ.
24.10 Valur 104:80 Keflavík
24.10 Höttur 76:91 Njarðvík
24.10 KR 72:84 Álftanes
18.10 Keflavík 88:89 Njarðvík
18.10 Þór Þ. 92:97 KR
17.10 Grindavík 113:84 Höttur
17.10 Álftanes 100:103 Valur
17.10 Tindastóll 106:78 Haukar
17.10 Stjarnan 117:88 ÍR
12.10 Haukar 80:92 Grindavík
12.10 Njarðvík 89:80 Álftanes
10.10 Höttur 120:115 Keflavík
10.10 ÍR 82:93 Tindastóll
10.10 KR 86:87 Stjarnan
10.10 Valur 88:95 Þór Þ.
04.10 Grindavík 100:81 ÍR
04.10 Stjarnan 95:81 Valur
03.10 Tindastóll 85:94 KR
03.10 Álftanes 101:108 Keflavík
03.10 Haukar 80:108 Höttur
03.10 Þór Þ. 93:90 Njarðvík
urslit.net
Fleira áhugavert

Staða og úrslit

Meira
L U T Mörk +/- Stig
1 Tindastóll 22 16 6 2134:1931 203 32
2 Stjarnan 22 15 7 2166:1948 218 30
3 Njarðvík 22 15 7 2096:2005 91 30
4 Valur 22 13 9 1944:1896 48 26
5 Grindavík 22 12 10 2064:2016 48 24
6 Álftanes 22 11 11 2014:2032 -18 22
7 ÍR 22 11 11 1946:2029 -83 22
8 Keflavík 22 10 12 2146:2132 14 20
9 KR 22 10 12 2044:2062 -18 20
10 Þór Þ. 22 9 13 2038:2125 -87 18
11 Höttur 22 6 16 1884:2041 -157 12
12 Haukar 22 4 18 1887:2146 -259 8
27.03 Stjarnan 103:110 Njarðvík
27.03 Tindastóll 88:74 Valur
27.03 Þór Þ. 114:119 Keflavík
27.03 Höttur 99:95 Álftanes
27.03 Haukar 80:91 ÍR
27.03 Grindavík 86:83 KR
14.03 Keflavík 107:98 Stjarnan
14.03 ÍR 84:83 Höttur
13.03 KR 103:87 Haukar
13.03 Valur 99:80 Grindavík
13.03 Álftanes 108:96 Þór Þ.
13.03 Njarðvík 101:90 Tindastóll
07.03 Grindavík 122:115 Njarðvík
07.03 Stjarnan 116:76 Álftanes
06.03 ÍR 97:96 KR
06.03 Höttur 103:95 Þór Þ.
06.03 Tindastóll 116:77 Keflavík
06.03 Haukar 81:85 Valur
01.03 Valur 90:87 ÍR
01.03 KR 97:75 Höttur
28.02 Grindavík 101:91 Keflavík
28.02 Þór Þ. 94:91 Stjarnan
28.02 Njarðvík 103:81 Haukar
28.02 Álftanes 102:89 Tindastóll
14.02 KR 89:96 Valur
14.02 ÍR 91:95 Njarðvík
13.02 Tindastóll 109:96 Þór Þ.
13.02 Haukar 95:104 Keflavík
13.02 Höttur 83:86 Stjarnan
12.02 Grindavík 92:94 Álftanes
07.02 Valur 92:58 Höttur
06.02 Njarðvík 103:79 KR
06.02 Þór Þ. 95:104 Grindavík
06.02 Álftanes 107:90 Haukar
06.02 Keflavík 81:90 ÍR
02.02 Stjarnan 82:90 Tindastóll
02.02 Haukar 99:100 Þór Þ.
31.01 KR 97:93 Keflavík
30.01 Grindavík 87:108 Stjarnan
30.01 ÍR 75:94 Álftanes
30.01 Höttur 85:97 Tindastóll
30.01 Valur 88:76 Njarðvík
24.01 Keflavík 70:81 Valur
24.01 Þór Þ. 94:95 ÍR
23.01 Tindastóll 97:79 Grindavík
23.01 Njarðvík 110:101 Höttur
23.01 Álftanes 111:100 KR
23.01 Stjarnan 99:75 Haukar
17.01 Haukar 100:99 Tindastóll
16.01 Njarðvík 107:98 Keflavík
16.01 KR 102:99 Þór Þ.
16.01 Valur 87:81 Álftanes
16.01 Höttur 63:64 Grindavík
16.01 ÍR 103:101 Stjarnan
10.01 Stjarnan 94:86 KR
10.01 Þór Þ. 94:69 Valur
09.01 Grindavík 79:71 Haukar
09.01 Tindastóll 98:88 ÍR
09.01 Keflavík 112:98 Höttur
09.01 Álftanes 75:81 Njarðvík
05.01 Valur 83:79 Stjarnan
03.01 KR 95:116 Tindastóll
03.01 Höttur 86:89 Haukar
02.01 Njarðvík 106:104 Þór Þ.
02.01 Keflavík 87:89 Álftanes
02.01 ÍR 98:90 Grindavík
20.12 Valur 89:80 Tindastóll
19.12 KR 120:112 Grindavík
19.12 Álftanes 89:92 Höttur
19.12 Keflavík 105:86 Þór Þ.
19.12 Njarðvík 90:100 Stjarnan
18.12 ÍR 93:96 Haukar
13.12 Grindavík 97:90 Valur
13.12 Þór Þ. 89:78 Álftanes
12.12 Stjarnan 97:93 Keflavík
12.12 Höttur 79:82 ÍR
12.12 Tindastóll 94:76 Njarðvík
12.12 Haukar 88:97 KR
06.12 Keflavík 120:93 Tindastóll
06.12 Álftanes 77:97 Stjarnan
05.12 KR 95:97 ÍR
05.12 Valur 97:104 Haukar
05.12 Þór Þ. 106:84 Höttur
05.12 Njarðvík 94:87 Grindavík
30.11 Stjarnan 124:82 Þór Þ.
29.11 Keflavík 96:104 Grindavík
29.11 Tindastóll 109:99 Álftanes
29.11 Haukar 74:93 Njarðvík
29.11 ÍR 84:83 Valur
29.11 Höttur 85:88 KR
15.11 Þór Þ. 78:101 Tindastóll
15.11 Njarðvík 96:101 ÍR
14.11 Valur 101:94 KR
14.11 Álftanes 90:88 Grindavík
14.11 Stjarnan 87:80 Höttur
14.11 Keflavík 117:85 Haukar
09.11 Grindavík 99:70 Þór Þ.
08.11 Haukar 86:91 Álftanes
08.11 Höttur 83:70 Valur
08.11 ÍR 79:91 Keflavík
08.11 KR 86:80 Njarðvík
03.11 Tindastóll 92:87 Stjarnan
01.11 Keflavík 94:88 KR
01.11 Þór Þ. 82:81 Haukar
31.10 Álftanes 93:87 ÍR
31.10 Stjarnan 104:98 Grindavík
31.10 Njarðvík 101:94 Valur
31.10 Tindastóll 99:59 Höttur
25.10 Grindavík 90:93 Tindastóll
25.10 Haukar 87:114 Stjarnan
24.10 ÍR 73:84 Þór Þ.
24.10 Valur 104:80 Keflavík
24.10 Höttur 76:91 Njarðvík
24.10 KR 72:84 Álftanes
18.10 Keflavík 88:89 Njarðvík
18.10 Þór Þ. 92:97 KR
17.10 Grindavík 113:84 Höttur
17.10 Álftanes 100:103 Valur
17.10 Tindastóll 106:78 Haukar
17.10 Stjarnan 117:88 ÍR
12.10 Haukar 80:92 Grindavík
12.10 Njarðvík 89:80 Álftanes
10.10 Höttur 120:115 Keflavík
10.10 ÍR 82:93 Tindastóll
10.10 KR 86:87 Stjarnan
10.10 Valur 88:95 Þór Þ.
04.10 Grindavík 100:81 ÍR
04.10 Stjarnan 95:81 Valur
03.10 Tindastóll 85:94 KR
03.10 Álftanes 101:108 Keflavík
03.10 Haukar 80:108 Höttur
03.10 Þór Þ. 93:90 Njarðvík
urslit.net
Fleira áhugavert