Eyþór Þrastarson, sundmaður úr ÍFR, og Sonja Sigurðardóttir, sundkona úr ÍFR, voru nú rétt í þessu útnefnd íþróttamaður- og íþróttakona ársins af Íþróttasambandi fatlaðra í hófi á Radison SAS Hótel Sögu.
Þau Eyþór og Sonja hafa átt góðu gengi að fagna á árinu en bæði tóku þau þátt í ólympíumóti fatlaðra sem fram fór í Peking í haust.