KR vann Fjölni í meistaradeildinni í sundi

Ragnheiður Ragnarsdóttir er í liði KR.
Ragnheiður Ragnarsdóttir er í liði KR. mbl.is/hag

Keppni í nýrri meistaradeild Reykjavíkur í sundi hófst í gærkvöld en þar keppa Reykjavíkurfélögin innbyrðis, tvö og tvö í senn. KR vann Fjölni, 84:67, í fyrstu viðureigninni.

Fyrirkomulagið er á þá leið að tveir keppendur frá hvoru félagi keppa í hverri grein fyrir sig.

Ármann og Ægir áttu einnig að mætast í gærkvöld en Ármenningar mættu ekki til leiks og þar með var Ægi dæmdur sigur.

Öll úrslit í viðureign KR og Fjölnis er að finna á vef KR-inga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert