Montreal Canadiens skráði nafn sitt í sögubækurnar í bandarísku NHL
íshokkídeildinni í gær með 2:1 sigri á útivelli gegn Washington Capitals í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar.
Montreal var í
áttunda sæti eftir deildarkeppnina en Washington var með besta árangurinn í því
efsta. Washington náði yfirhöndinni í einvíginu og komst í 3:1 en Montreal vann
næstu þrjá leiki og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Aldrei áður hefur lið í
áttunda sæti unnið þrjá leiki í röð í stöðunni 3:1 í úrslitakeppni. Úrslitin í
Austurdeild NHL deildarinnar hafa komið á óvart því þrjú efstu liðin í
deildarkeppninni eru úr leik eftir fyrstu umferð.
Jaroslav Halak markvörður Montreal sem kemur frá Slóvakíu lokaði hreinlega
markinu í þremur síðustu leikjunum. Hann varði 37 af alls 38 skotum í fimmta
leiknum, hann gerði enn betur í sjötta leiknum og varði 53 af alls 53 skotum Washington.
Í oddaleiknum varði Halak 41 af alls 42 skotum Washington. Hann var með 97,7 %
markvörslu í síðustu leikjunum.
Montreal mætir ríkjandi meistaraliði Pittsburgh Penguins í næstu umferð.
Philadelphia Flyers leikur gegn Boston Bruins í hinni undanúrslitaviðureigninni í Austurdeild.
Í Vesturdeild eigast við í undanúrslitum San Jose Sharks og Detroit Red Wings annarsvegar og Chicago Blackhawks og Vancouver Canucks hinsvegar.