Englendingar heimsmeistarar

Luke Humphries og Michael Smith að fagna sigrinum.
Luke Humphries og Michael Smith að fagna sigrinum. Ljósmynd/PDC Darts

Luke Humphries og Michael Smith skipa landslið Englands í pílukasti og tryggðu í kvöld heimsmeistaratitilinn eftir 10:6 sigur í úrslitaleiknum gegn Austurríki.

Þetta var fimmti titill Englands sem er nú orðin sigursælasta þjóð í sögu mótsins en það eru átta ár síðan að liðið vann síðast.

Þetta var í fyrsta sinn sem Luke Humphries var í liðinu en hann er ríkjandi heimsmeistari. Liðsfélagi hans Michael Smith var að taka þátt í fimmta sinn.



 

Mensur Suljovic og Rowby-John Rodriguez, skipuðu lið Austurríkis en þeir hafa verið liðsfélagar á mótinu frá 2020 og Mensur Suljovic hefur aldrei misst af heimsmeistaramóti frá því að það var haldið fyrst árið 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert