Luke Littler, 17 ára undrabarnið í pílukasti datt úr lek í fyrstu umferð á Players-meistaramótinu í Milton Keynes í gærkvöldi.
Hann tapaði óvænt gegn Robert Grundy sem er númer 116 á heimslistanum en Littler er númer 25 á listanum.
Grundy sneri aftur í pílukast eftir 15 ára fjarveru í janúar og kemst áfram í næstu umferð.