Góð byrjun Akureyringa

SA hafði betur gegn SR í kvöld.
SA hafði betur gegn SR í kvöld. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

SA er með tvo sigra eftir tvo leiki í úrvalsdeild kvenna í íshokkí en liðið vann heimasigur á SR í Skautahöll Akureyrar í kvöld, 4:1. SR er án stiga.

Aðalheiður Ragnarsdóttir skoraði eina mark fyrstu lotunnar og var ekkert skorað í annarri lotu.

Silvía Björgvinsdóttir gerði annað mark heimakvenna á 45. mínútu og Kolbrún Björnsdóttir það þriðja á 49. mínútu.

Friðrika Magnúsdóttir lagaði stöðuna fyrir SR þremur mínútum síðar, en Magdalena Sulova gulltryggði sigur SA með marki þremur mínútum fyrir leikslok.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert